Fréttatilkynningar ::

Fréttatilkynning 2003.03.01  

 

Fréttatilkynning – mars 2003

 


Edda og Myndlist - Tímamótaútgáfa

Út er komin hjá útgáfufélaginu Guðrún, Edda eftir Snorra Sturluson (1179-1241) á ensku. Í bókinni er að finna helstu frásagnir Eddu ásamt úrvali evrópskrar myndlistar sem sprottin af lestri Eddu á undanförnum öldum.

Edda…

Áhrif Eddu á evrópska menningu á undanförnum öldum eru geysimikil. Edda hefur ekki eingöngu verið áhrifavaldur á sviði bókmennta, heldur einnig á sviði tónlistar og myndlistar. Þessi útgáfa er að mörgu leyti tímamótaverk: Í henni er að finna rjómann af þeirri myndlist sem Edda hefur kveikt á undanförnum öldum. Textinn er auk þess settur fram með þeim hætti að höfðar til nútímamanna.

Edda er eitt af grundvallarritum norrænnar menningar. Hún er auk þess geysilega skemmtileg aflestrar. Þar segir frá uppruna Danmerkur og Svíþjóðar; Ævintýrum guðanna gömlu: Óðins, Þórs, Baldurs, Freyju og allra að ógleymdum hinum brögðótta Loka. Þar segir frá uppruna heimsins og endalokum hans. Ennfremur segir frá Völsungum og Niflungum, Sigurði og Drekanum.

Það er óhætt að undirstrika að meiri hluti þeirra frásagna sem er að finna í Eddu er hvergi að finna annars staðar. Norræn menning og þar með talin Evrópsk menning væri því óneitanlega fátækari ef ekki nyti Eddu við.

Það er auðvitað stórkostlegt að uppgötva hversu gífurleg áhrif Edda hefur haft á andlegt líf í Evrópu undanfarnar aldir. Það eru ógrynni af myndum og sögum sem úr jarðvegi hennar eru sprottin, og nægir að nefna áhrif hennar á Wagner og Tolkien.

Án Eddu væri vitneskja okkar um Ásatrúna af afar skornum skammti og skilningur okkar á fornum kveðskap og andlegu lífi norrænna manna á fyrri öldum þokukenndari

… og Myndlist

Myndlistarmennirnir sem eiga verk í bókinni eru frá tólf Evrópulöndum. Meðal þeirra er að finna marga af þekktustu myndlistarmönnum Evrópu, svo sem: Nicolai Abraham Abildgaard, Peter Nicolai Arbo, Ásgrím Jónsson, John Bauer, Aubrey Beardsley, Max Beckmann, Ernst Billgren, Hakon Bjærke, Peter Brandes, Jóhann Briem, Christoffer Wilhelm Eckersberg, James Ensor, Max Ernst, Mariano Fortuny, Lorenz Frølich, Johann Heinrich Fussli, Constantin Hansen, William Heinesen, Hans Heyerdahl, Karl Isakson, Jens Adolf Jerichau, Asger Jorn, Ernst Josephson,Wassily Kandinsky, Anselm Kiefer, Paul Klee, Carl Larson, J.L.Lund, August Malmström, Richard Mortensen, Gerhard Munthe, Kai Nielsen, Bjørn Nørgaard, Arthur Rackham, Odilon Redon, Axel Revold, Nicolai Roerich, Agnes Slott-Møller, Arnt Uhre, Dagfinn Werenskiold, Mårten Eskil Winge, Anders Zorn, auk margra annarra.

Vel á annað hundrað myndir eru í bókinni. Elsta myndin er frá 1680 og sú yngsta frá 1985. Bókin er í stóru broti (28x22 sm), og er 360 síður. Hún kostar 875 DKK


 
 
 
 
 
 
 
 

 

 

 
The Japanese Emperor, Akihito, receives Edda and Art as a gift from the Icelandic Prime Minister Halldor Asgrimsson. Reade more here..

Kærlighedsmagi- en bog om gammel magi og trolddom

Norsk stilkonkurranse: førstepremien gikk til Hannah Hagtved Hjeltnes - pressemelding
Norway - Skolenett writes: Snorre i vår tid - stor stilkonkurranse - vinn en tur for to til Island!

Norway - Aftenposten writes: "Den norrøne mytologiens billedrikdom"